Okei. Það var kók með kvöldmatnum og bróðir minn fór með flöskuna inn í herbergið sitt. Þegar hann var farin sá ég að það var daldið eftir af kókinu. Þar sem að mig langaði í kók þá ákvað ég að klára restina af því og fékk mér sopa. Þá fann ég viðbjóðslegt bragð og mundi að þegar bróðir minn er með einhvað matarkyns inni hjá sér í íláti eða flösku, td. drykkjarjógúrt og gos, og honum langar ekki í meira þá notar hann það sem öskubakka.
SVO ÉG FÉKK MÉR SOPA AF KÓKI+NOKKRAR SÍGARETTUR!
Ég er búin að tannbursta mig og allt en helvítis viðbjóðs bragðið er fast.
Ég er örugglega fyrsta manneskjan í heiminum til að DREKKA sígarettu!