Jæja..þannig er mál með vexti að í skólanum í morgun þá er stelpan sem situr við hliðina á mér að kíkja á það sem ég var að gera og herma eftir og ég bið hana að hætta,þá verður hún voða svekkt og fer eitthvað að tauta og þá segi ég “ætlaru ekki bara að láta kærasta þinn berja mig”…svo seinna um daginn,hringir ekki gaurinn í mig og segist ætla að berja mig og kemur fyrir framan húsið hans félaga mins og segir mér að koma út,sem ég gerði.Heirðu,þá er hún búin að ljúga því að honum að ég sé að káfa á henni,semsagt áreyta hana kynferðislega og hann er bara mættur með 5 gaura á 2 bílum,allir yfir 17 ára(ég er 15) og þeir eru að hóta mér,gerðu samt ekkert en hótuð mér m.a lífláti(þetta meiningarlausa “ég drep þig” dæmi)ef ég léti hana ekki í friði(sem er ekkert mál,ÞVÍ ÉG GERÐI EKKERT!!!!!)svo fóru þeir bara.Það sem fer mest í taugarnar á mér er það að hann gat eikki drattast að koma einn,Hann þurfti að mæta með slatta af gaurum,þoli ekki svona aumingjaskap