Já, það er nú 3. sunnudagur í aðventu á sunnudaginn, vsvo ég var að pæla, hvað hafa hugarar skreytt mikið?

Heima hjá mér er bara búið að setja upp seríur, og annað ljósaskraut, I love it! En inni hjá mér er ég með eina gluggaseríu, og svo flækju í loftinu sem samanstendur af jólaseríu, heilsársseríu og garlandi. Mmmmmm, ljósið sem kemur af þessu. Nú er bara að redda sér fjöltengi svo að ég geti sett upp fleiri seríur, vantar ennþá á t.d. hillusamstæðuna ^^

Ert þú búin(n) að skreyta e-ð?