Góða kvöldið kæru hugarar. Ég vil deila með ykkur eina leiðinlega reynslu sem ég lennti í nótt.

Ég og vinkona mín svissuðum um bíl svo að ég kæmist í bæinn. Bíllinn hennar er á nöglum en minn er á sléttum (leti í mér ;) ). Ég fór á bílnum hennar heim til mín og ætlaði bara að skila honum daginn eftir því að ég vildi ekki vekja hana um hánótt.

Vaknar pabbi vinkonu minnar við að nágranni þeirra bankar uppá og tilkynnir honum að það voru unnin skemmdarverk á nokkrum bílum í götunni og bíllinn minn var þar að meðal. Bíll nágrannans var ansi mikið skemmdur. Svartur bimmi (BMW) sem leit út eins og KR merkið af rispum. :( Dældir á honum og skorin dekk.

Löggan var kölluð á staðinn og þar var tekin skýrsla. Og sú skýrsla á mínum bíl verður send til VÍS svo að þetta verði bætt.. :) Minn er sko í Kaskó í þokkabót. :D

Bíllinn minn slapp mest af öllum bílunum sem hlutu skemmdir í götunni. Með 2 stórar rispur bílstjóramegin. Ekkert farþegamegin. :) Og það var hleypt lofti úr öllum dekkjunum. Sem betur fer skáru þeir ekki dekkin hjá mér. Ég á engin önnur dekk. Bara ófelguð nagladekk.

Bara óþolandi þetta lið sem ber enga virðingu fyrir eigum annarra. :@ Dýrir hlutir eru bara leikföng fyrir þessu liði!

Rauða dúllan mín fer í sprautun.. Ég er mest kát með það. :)