Hæ og OK!
Þessi vefur á kannski heima inni á fótbolta en só bé it! Ég er Lecter og fer mínar egin leiðir!

En þegar Arsenal keypti hinn snilldar leikmann sinn Dennis Berkamp lenti hann í NÁKVÆMLEGA sömu hremmingum og Peter Crouch hjá LFC í dag!

Berkamp gat bara ekki skorað í marga mánuði og það voru haldnir fjöldin allur af fréttamannafundum sem eina spurningin var samhljóðandi á! Hvenær skorar Berkamp í Englandi????

En þið ykkar sem hafa vit á milli eyrnanna og hafa aðeins meira langtíma minni en gullfiskar vita fullkomlega hvað ég er að tala um!

Þess vegna segji ég við ykkur sem eru nýbúnir að losna við kláðann undan Pampers-bleyjunum og eru að rembast eins og rjúpan upp við staurinn að gagnrýna hið mesta, sigursælasta og gegnumgangandi mesta stórveldi enskrar knattspyrnu sem er hið mikla stórveldi Liverpool Football Club að rína aðeins í hvað sagan segir okkur áður en við förum að hengja bakara fyrir smið!

Berkamp tók langan tíma að aðlagast að sama skapi mun ég gefa Crouch sama tíma því hann hefur sama fótbolta heila og Berkamp!

And Thats The Truth Ruth!
L