þar sem gátur virðast vera inn, þá langar mig að monta mig að hafa ráðið gátu :) þekkt gáta, kannski margir hérna ráðið hana, I dont know, and I sure dont care.. eða jú, I care, þeir sem geta ráðið þessa gátu sendið mér like svarið í pm :) k thanks..

(set gátuna inn eins og ég fékk hana senda)

Einstein skrifaði eftirfarandi gátu á síðustu öld.
>> Hann sagði að 98%
>> jarðarbúa gætu ekki leyst hana!
>>
>> 1.Það eru 5 hús í mismunandi litum
>> 2.Í hverju húsi búa menn af mismunandi þjóðerni
>> 3.Eigendurnir fimm drekka mismunandi drykk hver,
>> reykja sína tegund af tóbaki og
>> eiga hver sína tegund gæludýri.
>> 4.Engin á sömu tegund gæludýrs, engin reykir
>> sömu tóbakstegund eða drekkur
>> sömu drykkjartegund.
>>
>>
>> Góða skemmtun, þ.e.a.s. þið 2%
>>
>>
>>
>>
>> A.Bretin býr í rauðu húsi.
>> B.Svíinn á hund.
>> C.Daninn drekkur te.
>> D.Græna húsið er til vinstri við hvíta húsið.
>> E.Eigandi græna hússins drekkur kaffi.
>> F.Sá sem reykir Pall Mall vindlinga á páfagauk.
>> G.Eigandi gula hússins reykir Dunhill.
>> H.Maðurinn í miðhúsinu drekkur mjólk.
>> I.Norðmaðurinn býr í fyrsta húsinu.
>> J.Sá sem reykir blandað tóbak býr við hlið þess sem á kött.
>> K.Sá sem á hest býr við hliðina á þeim sem reykir Dunhill.
>> L.Sá sem reykir Blue Master drekkur bjór.
>> M.Þjóðverjin reykir Prins.
>> N.Norðmaðurinn býr við hliðina á bláa húsinu.
>> O.Sá sem reykir blandað tóbak býr við hlið þess sem drekkur vatn.
>>
>>
>> Spurningin er hver á FISKINN?