Ég hef núna horft á nokkra þætti í þessari seríu og ég verð bara að segja það að bandarísku áróðursmaskínunni hefur tekist vel upp. Þessir þættir ganga bara út á það að sýna Bandaríkin í góðu ljósi og að það sé allt í lagi að þeir skjóti allt í tætlur því að allir sem þeir drepa eru Hryðjuverka menn. Eins og í þættinum núna þá var móðir og barn drepið og allt varð brjálað en svo kom í ljós að barninu var sagt að hlaupa fyrir byssuna og fórna sér. Það sem ég hef lært af þessum þáttum er að þegar Bandaríkjaher drepur óbreytta borgara í Írak þá er þetta oftast bara fólk sem er að reyna klína sökinni á Bandaríkin og það er allt í lagi að skjóta alla íraka því þeir eru hvort sem er oftast hryðjuverkamenn.