Ég var áðan að labba úr bíó-i til vinkonu minnar og við vorum þarna að labba í góðu stuði og þá stoppar bíl hliðiná okkur og einhverjir 4 gaurar í bílnum og þeir fara að spyrja okkur hvernig er hægt að vera svona skrítinn og klæða sig svona ljótt..
Við vorum semsagt 6 þarna og 2 af okkur voru með svona litað rautt hár og voru í sona létt-emo fötum, annars vorum við bara mjög venjuleg.
Síðan fór bíllinn og kom síðan aftur eftir svona 2 mínútur og gaurarnir héldu áfram í sona hálfa mínútu.

Hvað er að fólki sem gerir svona hluti ? Það hlýtur í alvöru að vera eitthvað skrítið í hausnum.
Hefur það í alvöru ekkert að gera annað en að rúnta um og fara að bögga fólk útaf engu til að finnast þeir vera harðir. Fyndnast finnst mér samt að þeir eru að bögga fólk í bíl til að geta stungið af þegar að maður svarar á móti. Ein vinkona mín sagði þeim að koma út og segja þetta aftur og þá fóru þeir.. :D