Áður en ég nöldra aðal nöldrið þarf ég aðeins að nölrda um algjörlega tilgangslaust nöldur. Það er að segja, eftirfarandi nöldur er tilgangslaust.
Ég HATA að finna titill á allt á hugi.is. Ég vissi t.d. ekkert hvað ég ætti að skíra þennan kork, þannig að ég kom með þann frumlega titil ‘Nöldur’…

Allavega.

Það fór örlítið í taugarnar á mér þegar ég var að skoða forsíðukorkana. Ég veit ekki hvort einhver sagði þetta í svari eða hvað, nennti ekki að skoða það.
Korkurinn var um Hjálpum Þeim lagið, hvernig það væri hægt að nálgast það. Jæja, ekkert mál, þú vilt lagið en er þá ekki lágmark að kaupa diskinn? Hann er að styrkja þúsundir manna, sem gætu dáið úr kulda og hungri og það eru nú einu sinni að koma jól [ekki að þetta væri ekki jafn merkilegt í júlí eða eitthvað...].
Drullisti bara til að spara örlítinn pening og styrkið gott málefni. Á meðan að það var pokaskortur í mínum bekk áðan var matarskortur og þess háttar þarna úti. Þetta er ekki erfitt, að kaupa eitt stykki lítinn geisladisk og styrkja.

Fjúff. Takk fyrir mig.