Já ég ætla aðeins og nöldra útaf bróðir mínum!
Síðastliðin ár hef ég verið að vinna af mér allt vit til að kaupa stöff. og hann gengur í hlutina mína eins og hann fái borgað fyrir það btw hann eyðileggur ALLT sem hann snertir. og skilur ekki að hann megi ekki taka tölvuna mína með í skólann eða á lan. Hann spyr ALDREI hvort hann megi fara í tölvuna mína eða bara fá allt í láni. fer bara og tekur það sem honum sýnist.
Í sumar gerði ég dauðaleit af einni dvd mynd sem ég á. og spurði hann liggur við á hverjum degi hvort hann vissi um myndina og alltaf “nei ég veit ekkert um hana” og núna í sept þá kom vinur hans með myndina og hann hafði verið með hana í láni síðan í VOR! og þetta hefur skeð áður að hann láni bara hlutina mína án þess að spurja kóng né prest. Í gær þá ruddist hann í herbergið mitt að róta í myndunum mínum (herbergið mitt er í breytingum núna) og hann settist á skrifborðið sem var með fullt af styttum og staupaglösum og það duttu 2 glös í gólfið og brotnuðu :( og líka ein stytta :( og ég varð náttla pirruð og hvað gerði hann. fór í fílu því ég rak hann út og tók myndirnar af honum og hann gat ekki einu sinni sópað upp glerbrotin ÉG þurfti að gera það!
Hann er líka mesta dekurdýr í heiminum. hann þarf liggur við ekki að smyrja brauðið sitt!
ohh hann er óþolandi!! skemmir allt sem ég á og mest uppáþrengjandi manneskja EVER
Ofurhugi og ofurmamma