Hmm, módemið hefur verið inn/út seinustu daga. Byrjaði allt þegar rafmagnið fór af í eina sekúndu einn daginn, þegar ég var búinn að kveikja á öllu aftur þá virkaði beinirinn ekki. Komu öll ljós og það, nema ljósið sem gefur “Internet” til kynna. Hef prófað að restarta beininum, en það virkar ekkert. Þetta kemur svo bara inn þegar því hentar upp úr þurru.

Stundum síðan bara upp úr þurru þá dettur netið út, kemur síðan allt í einu inn aftur.

Hvað í fjandanum er að þessu litla tæki?