Matarsmekkur fólks er jafn misjafn og fólkið er margt og þessvegna langar mig að spurja ykkur kæru hugarar hvað ykkur þykis bezt á diskinn ykkar.
þannig að já hvað þykir ÞÉR Best að borða og drekka með :P ?

Hjá mér myndi það vera Aspassúpa í forrétt með brauði og pålegg ( Álegg á íslensku ) svo Lambalæri með brúnuðum kartöflum,rauðkáli,grænum baunum,hrásalati og Bjór í aðalrétt og svo loks væri eftirrétturinn Venjulegur vanilluís með heimatilbúinni sósu sem mamma gerir.

Úfff ég verð svangur við að hugsa um þettað. Omfg
I will never doubt the power of those in love.