Stundum vill svo til að ég smelli á einhvern tengil hér á huga og fer inn á utanaðkomandi síðu. Þegar ég er búinn að skoða síðuna á ég til að slökkva á þeim glugga og ætla mér að skoða meira á Huga en úbs, enginn Hugi.

Í stað þess að opna síðuna í nýjum glugga, eins og gerist reyndar þegar ég smelli á Heimasíðutengilinn og Staðsetningartengilinn í notendaupplýsingum, fer ég út af Huga og inn á aðra síðu.

Ég er viss um að hver sem er á Vefsíðugerð getur sagt ykkur að þetta sé slæm aðferðafræði, maður á að reyna að halda fólki inni á síðunni en ekki senda þá í burtu við minnsta tækifæri.

Því vil ég benda ykkur á að bæta við target=“_blank” á tenglana svo notendur sem eru vanir því að vera ekki hent út sí og æ þurfi ekki sífellt að logga sig inn aftur þótt þeim verði það á að slökkva á glugganum sem utanakomandi síðan er í.

Kveðja
Octavo
Skoðanir Octavo eru hans eigin og gætu því stangast á við skoðanir annarra á Huga. Þér er velkomið að: