Afhverju vill aldrei neinn tala við mann? Maður gerir sitt besta við að reyna að tala við einhvern.. en hann sýnir manni engan áhuga, frekar einhverri stelpu sem er með langt bil á milli augnana.. er það svona fallegt ha? jáhh… greinilega.. . ég meina, ég er ekki með langt bil á milli augnana, en ég er heldur ekki með stutt bil á milli augnana.. nei ég segi svona, ég veit þetta kemur ekkert bili á milli augnana við:/
En vá.. ég var bara að hözzla alla stráka sem ég sá, ég er greinilega svona sorgleg manneskja.. mér finnst að strákar eigi að hözzla stundum…. alltaf ég.. why?
Æj sorry.. ég er bara sad og lonely og ég held að fólk þurfi að skoða geðveikt vel til að sjá einhverja fegurð…
æj ég bara.. ég nenni ekki að fara að sofa,.. og ég er bara æj ég veit ekki.. ég veit allavega að éger búin að segja alltof mikið æj.. á ég kannski ekki bara að segja ykkur söguna?

Okei.. ég var s.s. bara á djamminu.. búin að drekka smá.. allavega nóg til að segja hæ og reyna að spjalla.. já ég sagð sko meira en bara hæ, ég sagði honum að hann væri geðveikt nice strákur og svona.. þá kemur stelpan með langa bilið á milli augnana og vá.. kvisbammbúmm.. hann hefur geðveikan áhuga á henni.. og hann er þarna með vini sínum sem langar alveg að tala við mig og ég segi alveg eitthvað við hann, spjalla smá, en ég er að reyna að ná athygli hins líka.. hann virðist ekki hafa einn einasta áhuga á mér… En ég er að reyna að gefa honum tækifæri á að kynnast mér, ég er sérstök, ég er með svo sterkan karakter.. þú bara annaðhvort hatar mig eða elska.. tjaahh.. ég komast að því að hann hatar mig.. því að áður en ég veit af er vinkona mín komin og pikkar í mig: ,, ég átti nú bara að sækja þig því þú varst að kæfa vin hans!" Ohh.. djöfullinn ég klúðraði þessu.. hef ekki þorað að segja neitt við hann síðan ég byrjaði í skólanum og svo núna loksins.. ég hafði leitað að honum og svo sá ég hann alltíeinu þegar ég var nokkuð viss um að hann væri ekki þarna.. og hann birist þarna beint fyrir framan mig….

Jáh.. strákarnir… þeir hata mig víst:/ Ég er bara pirrandi stelpa… veit ekkert í sinn haus…
Farðu að sofa H******….