Ég sá hérna fyrir neðan að það hefðu einhverjir verið að senda inn kork um það hvar maður hefði sofnað og vaknað og þanni… þannig að ég ákvað að senda inn kork og spurja hvort einhver hafi gengið í svefni og hvað gerðirðu eða hvert fórstu (þ.e.a.s ef þú hefur gengið í svefni)

Ég sjálfur fór framm úr og klæddi mig í öfug föt og fór svo fram, og þar sat pabbi við tölvunna og var að vinna og spurði mig hvað ég var að gera og ég sagðist ætla að fara að vinna (kl var 3 um nóttu eða eitthvað) og hann sagði “ha?? vinna??” og ég sagði “já, vinna með skólanum!” og hann sagði “nei” og ég sagði “JÚ!!!!” og hann sagði “NEI!! þú ert ekkert að fara að vinna núna, klukkan er 3 um nóttu!!” þá sagði ég “ó” og sneri mér við og fór inní herbergi og fór að sofa:P

Svo ætlaði ég líka einusinni á klósettið um nóttina og var svona hálf sofandi og fór frammúr og labbaði á vegg og hrökk upp og það var skrýtin tilfinning, alltí einu er maður ekki í rúminu sínu heldur fyrir framan einhvern vegg:P

en hvað með ykkur??