tekið af mbl

Kona reyndi að ræna leigubílstjóra Hreyfils með loftbyssu um hálfátta-leytið í kvöld. Var leigubíllinn á horni Ármúla og Suðurlandsbrautar með konuna innan borðs þegar hún mun hafa otað loftbyssu að leigubílstjóranum og heimtað peninga. Ekki varð konunni þó ágengt þar sem hún var handtekin af lögreglu eftir að bílstjórinn hafði haldið henni í 20 mínútur inni í bílnum. Kom hann í veg fyrir að konan gæti opnað dyrnar.

Leigubílsstjórinn slapp með skrekkinn þar sem hann náði að afvopna konuna fljótlega eftir að hún beindi að honum byssunni og hafði hann samband við stjórnstöð Hreyfils. Starfsmaður hennar hafði samband við lögregluna. Lýsti bílstjórinn vandlega ástandinu á meðan hann hélt konunni í bílnum.

Sérsveit lögreglunnar mætti á staðinn og færði bæði hafa á lögreglustöð til yfirheyrslu. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu.

haha
ratatat: