Hefur einhver tekið eftir hve fucked up sumt fólk er?

Skítkast á mann og annan, “taktu sandinn úr píkunni” er dæmi. Algengt svar sem er helvíti pirrandi.

Hvernig væri að like, færa rök fyrir máli ykkar?

Síðan eru sumir sem trúa því að skítkast virki sem rök. Það eru mistök. Myndið þið taka mark á mér ef ég segði ykkur að hætta þessum helvítis stælum eða ég myndi koma og drepa föður ykkar á meðan þið horfið bundin á grenjandi úr ykkur augun? Nei, ég stórefa það. Ég myndi fá eitthvað álíka gáfulegt á mig til baka, sem enginn tæki mark á.

Þannig að ég spyr; hvers vegna að svara einhvern veginn svona?

Sama hvers kyns maður er, hvað var sagt við mann, aldrei nokkurntímann leggjast niður á plan annarra, plan sem þeir áttu aldrei að leggjast niður á í fyrsta lagi.

Takk fyrir.