Vissi ekki alveg hvar ég átti að setja þetta inn.

En jæja ég var inná msn áðan og þá kom allt í einu upp skilaboð frá einum af contact listanum mínum

“Heh, is that you? www.messengertools.org/msn.php?session=HRFsvcIwO289&user=og svo email addressan min eftirá”

Ef þið lendið í þessu, alls ekki klikka á linkinn, annars kemur upp gluggi þar sem segir “downloading file” og wallah.. þessi linkur fer nú á alla sem eru á msn contact-listanum þínum.

Vona að þetta sé ekki of ruglandi.
Djöfull hata ég svona virusa :(