The White Stripes spila á Íslandi þann 20.nóvember

Ein stærsta rokkhljómsveit heims The White Stripes spilar í Reykjavík 20. nóvember. Tónleikarnir munu fara fram í Laugardalshöll. Það er Hr. Örlygur sem stendur að komu The White Stripes til Íslands.

The White Stripes samanstendur af Jack White (gítar/söngur) og Meg White (trommur). Svetin var stofnuð í Detroit árið 1997 og vakti mikla athygli fyrir sína fyrstu breiðskífu samnefnd sveitinni árið 1999. Í kjölfarið fylgdu skífurnar De Stijl (2000), White Blood Cells (2001) og Elephant (2003) sem með lögum á borð við “Seven Nation Army” og “I Just Don’t Know What To Do With Myself” kom The White Stripes í röð vinsælustu hljómsveita heims.

Fimmta breiðskífa sveitarinnar Get Behind Me Satan, sem kom út í sumar, hefur fengið gríðarlega góða viðtökur hjá bæði plötukaupendum og í tónlistarpressunni. Fyrstu tvö smáskífulög plötunnar - “Blue Orchild” og “My Doorbell” - hafa notið mikilla vinsælda, en nýtt smáskífulag “The Denial Twist” kemur út viku fyrir tónleika þeirra í Reykjavík.


c/P = http://www.beygla.is/fullnews.php?id=269&table=news1

Ég ætla pottþétt að fara á tónleikana , það verður geðveikt