Þegar að ég vaknaði í morgun var mér tilkinnt að einhverjir strákar sem áttu leið framhjá húsinu mínu í nótt noppuðu upp á bílinn minn og skemmdu hann. Pabbi var ekki farinn að sofa þannig að hann sá þetta og elti strákana niður í búðina sem er hérna rétt fyrir neðan. Pabbi hringdi í lögguna og gaf þeim upp númerið á bílnum sem að þeir fóru í þarna niðri í búðinni.
Bíllinn er allur í dældum því að strákarnir hoppuðu upp á bílinn.
Ég er ekki neitt voðalega bjartsýn á að löggan geri neitt í þessu. En það gæti líka bara verið ég sem að er ekki að treysta löggunni.
En hvað fengu þessir strákar útúr því að skemma bílinn? Þeir léku þennan sama leik við annan bíl hérna í götunni. Þannig að þeir eru ekki að eyðileggja bara minn bíl heldur voru þeir að skemma bílana sem að voru fyrir vegi þeirra.
Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda, úti sem og Gabríel…