Talsmaður pakistanska hersins sagði í dag að tala þeirra sem látið hafi lífið í jarðskjálftanum í nótt kunni að hlaupa á þúsundum. Eyðileggingin af völdum skjálftans væri gífurleg. Mest hafi tjón orðið í pakistanska hluta Kasmírhéraðs. Þegar hefur verið staðfest að hátt í 500 manns hafi látist í Pakistan, Indlandi og Afganistan. Skjálftinn mældist 7,6 á Richter.

http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1162292