——-Spoilers———

Bara að spá hvort einhverjir aðrir séu búnir að finna Hanso Foundation síðuna, ýmislegt spennandi þarna að sjá, getið t.d. séð video-ið sem Jack og Locke horfðu á, eitthvað öðruvísi en í þættinum held ég, virtist vera eins og það væri búðið að bæta inn nokkrum römum hér og þar,

maður verður að horfa á þetta frame by frame bara held ég og svo er töluvert mikið af vísbendingum um hvað er raunverulega í gangi á eyjunni (nema þeir séu bara látu okkur halda það) þarna á síðunni.

Annars var ég að sjá á netinu að í þætti 202 þegar Walt birtist og hvíslar einhverju að Shannon þá ef orðin sem hann segir séu spiluð aftur á bak þá virðist vera eins og hann sé að segja “don´t push the butt” og svo eitthvað annað… audio clip af því hérna

Hörkuspennandi hlutir frammundan eflaust og mæli eindregið með því að þeir sem hafa ekki séð þessa þætti næli sér í fyrstu seríuna á DVD og byrji að horfa
ALL GLORY TO THE HYPNOTOAD!