Þetta er nú ekki beint bílslys en samt.
Ég var að labba framhjá hlíðarskóla. þegar ég sé rauðan, soldið gamlann, man ekki hvaða tegund, allavega. ég sé hann koma keyrandi niður á móti mér þegar hann rammar sér inn í hliðina á hvítum bíl í stæði og keyrir svo burt með sprungið á dekkinu. ég er bara rétt að átta mig á hvað hafði gerst þegar maður kemur hlaupandi úr næsta húsi og spyr mig hvert bíllinn fór. ég benti bara niður götuna og sagði : rauður soldið gamall bí… og hann var fokin af stað í bílnum sínum á eftir rauða bílnum.

þetta gerðist daginn eftir menningarnótt. hvort eithvað hafi gerst þarna á milli þeirra. það veit enginn nema þeir… og kannski nokkrir vinir þeirra.