Ég geri ráð fyrir að þú sért á pésa, svo ég get ekki fullyrt alveg um hvernig þetta gengur.
Þetta hljómar helst eins og þú hafir nýlega fært alla tónlistarmöppuna þína. Þá gætirðu kannski eytt allri tónlistinni út af iTunes listanum og opnað hana svo alla aftur með iTunes - eða bara dregið möppuna yfir í iTunes-gluggann. Þú þarft líklega samt að eyða ónýtu slóðunum út af listanum fyrst. Ég þekki enga betri leið til að laga mikið af vitlausum slóðum í iTunes.
Það er eitt nokkuð öruggt sem þú getur gert til að iTunes týni ekki lögunum, þó ég sé ekki alveg viss hvernig það gengur á pésa. Farðu í preferences - Advanced og hakaðu við “Copy files to iTunes Music folder…” og “Keep iTunes Music folder organized.” Þetta ætti að vera eitthvað í þá veruna. Eyddu svo út upphaflegu skránum þar sem iTunes afritar þær sjálfkrafa í sérstaka möppu. Ef þú gerir það ekki tekur tónlistin auðvitað tvöfalt það pláss á harða disknum sem hún ætti að taka.
Ef ekkert lagast geturðu farið á apple.com - support. Þeir eru með ansi víðtækan hjálparvef með bæði FAQ og spjallþráðum.