Ég var að koma frá þessari mynd í bíó og fannst hún alveg stórskemmtileg. En ég er með spurningu fyrir þá sem hafa séð þessa mynd, hélduð þið að Cal og kallinn sem elskaði þessa Amy svo mikið, hélduð þið að þeir ættu eftir að enda með því að vera hommar í endann því að þeir voru alltaf að segja:Do you know why I know you´re gay? Be cause you listen to coldplay og svona. En ég hélt það en það gerðist ekki. Hvað hélduð þið??

En svo ætla ég líka að kvarta yfir heimsku fólki í bíó. Þegar myndin var í gangi hringdu svona 4 gsm símar og fólkin svöruðu ALLTAF. Sögðu alltaf:Halló, ég er í bíó, já , ég hringi í þig á eftir. Ok , já . ok bæ. og sögðu þetta soldið hátt

Svo klöppuðu einhverjir 5 IDÍOTAR þegar myndin var búinn. Maður klappar EKKI þegar einhver bíómynd er búinn, nema ef þú værir á svona frumsýningu með leikurunum úr myndinni ÞÁ klappar maður, IDIOTS!