Ætla ekkert að vera eitthvað “emo”

En er ég eini sem er með svona ups and downs í þessu blessaða lífi? :)

Mér er búið að líða ömurlega í dag, bara veit ekkert afhverju. Kominn með ógeð af þessari rútínu: Vakna, Skóli, Fara heim að chilla, fara í ræktina, chilla þegar þú kemur heim, sofa.

Maður hittir vini sína alveg þarna á milli en samt…

2/7 af vikunni er kannski skemmtilegur.. Föstudagur og Laugardagur, stundum ekki. Þá er vikan öll skítur. Svo byrjar skólinn aftur, þá gerir maður það sama og alltaf.

Ég er alls ekkert þunglyndur eða kannski núna. Þetta fer úr mér, en mig langaði bara að deila þessu svona með ykkur. :)