Á bensínstöðinni keyri ég í átt að dælu. Er alveg að koma að henni þegar allt í einu kemur bíll á miklum hraða og svínar á mig með því að gefa í botn að dælunni. Einhver sem að hefur verið að koma hinum megin og séð mig, ákveðið að gefa í til þess að ná dælunni á undan mér. Arggghhh hvað þetta er algengt á Íslandi svona þvílíkur dónaskapur.

Maðurinn var alveg þvílíkt lengi, var örugglega á dropanum og að fylla. Loksins klárar hann og ég stíg út. Ég sver það NÁKVÆMLEGA Á SÖMU SEKÚNDU kemur slydda.

Maðurinn sem svínaði á mig rétt slapp á meðan ég þurfti að dæla í köldu slyddunni! :/