Er Robbie Williams orðinn geðbilaður eða?

http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1159311

Fyrir þá sem eru latir þá kemur fréttin hér:

Veröld/Fólk | mbl.is | 20.9.2005 | 11:19
Robbie óttast innrás geimvera

Robbie Williams segist vera sannfærður um að geimverur muni innan skamms gera innrás í Bretland.

Reyndar óttast hann að litlir grænir kallar muni hreinlega taka alla jörðina á sitt vald og hvetur aðdáendur sína til að vera viðbúna nánum kynnum.

„Mig hefur dreymt um fljúgandi furðuhluti allar nætur, allar nætur. Ég hlakka til að fara að sofa því að þessir draumar eru svo brilljant,“ er haft eftir honum.