Ég var í mat hjá vinkonu pabba ok allt í lagi með það en maturinn var hræðilega sterkur, mér finnst sterkur matur ok þangað til hann er kominn upp að ákveðnu leveli.
Áður þegar hún hefur boðið okkur í mat þá bauð hún okkur í eitthvað Mexíkanst og það var aðeins OF mikið sterkt nánast óætt, þurfti að fá mér 2-3 sopa áður en ég gat haldið áfram að borða og ég var samt að drepast úr sviða í kjaftinum.
Síðan bauð hún okkur í saltkjöt og baunir, mér finnst baunasúpa ekki góð þannig að ég fæ mér alltaf bara hangikjöt, hangikjötið var svo seigt að það var nánast óætt.

Versta “hótun” sem þessi manneskja hefur sagt er:“Ég ætla að bjóða þér reglulega í mat í vetur.” hún sagði þetta við pabba.

Síðan var það um dagin ég var að setja á ennið á mér bóluhreinsandi efni og það kom stór dropi og lak í augað á mér áður en ég náði að þurrka hann í burtu og það sveið ógeðslega mikið í augað.

Takk fyrir að hafa nennt að lesið nöldrið í mér, ef þið hafið ekki nennt því þá skil ég ykkur fullkomlega.