Það var tekið 4 jaxla úr mér mánudaginn síðastliðinn og ekki hætt að blæða.
Áðan fór ég uppá slysó og þar beið ég í sinn tíma en þeir vildu ekki taka á móti mér svo ég þurfti að fara á einhverja tannlæknastofu í grafarvoginum (réttara sagt í Spönginni) og þar var 1 maður starfandi og fullt að gera. Þar beið ég í heillangan tíma þangað til loks hann tók við mér og hann var rétt svo byrjaður þegar hann þurfti að sinna öðrum sjúklingi, og þar beið ég og sofnaði smá þangað til loksins kemur hann og segir mér að bíta í eikka ógeðslegt í 10 mín (held ég). Loksins er þetta búið en ég má ekki hlaupa, öskra, stunda íþróttir og þarf að taka öllu rólega.. Alveg Ömurlegt :(