Laust uppúr 10 í gærkveldi var hringt í mig frá Og Vodafone og spurt:“Já er þetta Einar?” Já svaraði ég. “Já ég er hérna að hringja frá Og Vodafone og ég sé að þú ert hjá símanum” Öhh… Já? svara ég “Hafðiru nokkuð hugsað þér að skipta yfir í Og Vodafone?”


Þetta finnst mér of langt gengið og hreinlega fáránlegt. Þetta er sennilega lágkúrulegasta sölutrikk sem ég bara veit um. Og ég var heldur pirraður. Segið mér ef að fleiri hafa lent í þessu!