Ég veit ekki allveg hvort að þetta passar inn í hérna..enn hér kemur þetta..

Næst besta vinkona mín er orðinn óþolandi! Með hroka og stæla. Ég er besta vinkona hennar og ef að ég hefði ekki orðið vinkona hennar væri hún versti nördi! Svo segjir hún við mig þegar ég segji við hana “ afhverju ertu með þessa stæla?” þá segjir hún “ æjj sorrý ég er bara ömurleg” þá þarf ég að vorkenna henni í 100 skipti og alltaf það sama. Hún á eginlega ekki marga vini. Bara 3 aðrar stelpur sem að eru mjög góðar vinkonur okkar og einhverjar stelpur sem að æfa með henni.

Og besta vinkona mín hún þolir hana ekki stundum… þær eru ekki vinkonur. Hvað á ég að segja við hana?? ég veit að þetta kemur út eins og ég sé hin versta gelgja. Enn ég er bara svo pirruð á þessum stælum..