Ég ætla að fá smá útrás hérna !:D

síastliðin 2 ár þá er ég búinn að fá einhvern ***** sem þessir læknar kalla eitlabólgu?! Þá er eitthvað á hálsinum á mér sem blæs út, og þessu fylgir heiftarlegt kvef :/. Ég er með þetta núna tek ég fram! En þetta er algjörlega óþolandi missi mikið úr skóla (ekki gaman ef þú ert svona veikur í staðinn). Í gær hringir pabbi svo í lækni því að ég þarf að fara til einhvers sérfræðings, og þá heldur læknirinn að þetta sé alls ekki neitt tengt eitlunum :-O, heldur eitthvað tengt skjaldkirtlinum!! Ég HATA að taka lyf, en samt oftast þegar að ég fæ þetta er ég sett á einhvern pensilín viðbjóð! Síðast neitaði ég bara að taka þetta og sagði lækninum bara að ég æti frekar slatta af hvítlauk, því hann er svo bakteríudrepandi. En nei! þá er ég send á einhvern domus medica blahh.. og kemur í ljós að ég er líka með kinnholubólgu! eins og þetta sé ekki nóg :/, þannig ég neyðist til að taka einhver lyf (ullabjakk)!

Jáhh.. þá líður mér betur :), og ég er ekki frá því að þetta sé lengsti nöldurkorkurinn í langan tíma!