Urgur. Ég er í VONDU skapi. Ég var að finna út núna, að í helgarfríinu mínu, áður en maður þarf að fara í skólann og læra með hundleiðinlega kennara í 6 eða fleiri tíma fimm daga í röð, þá þarf ég að: Nr.1 vakna klukkan 9 (sem er allt í lagi, nema það að um helgar vil ég fá að sofa til í minnsta lagi 12). Nr.2 Fara í klippingu á hárgreiðslustofu fulla af eldgömlum kellingum, og svo einhverjar 2 stelpur sem maður treystir til að setja ekki á mann hárgreiðslu í líkingu við dómarahárkollurnar.
Ég fór þangað fyrir nokkru til að fá mér topp, og vitiði hvað? KONAN KLÁRAÐI EKKI EINU SINNI TOPPINN! Það eru þrír helvítis hárlokkar sem hún GLEYMDI AÐ KLIPPA!

URGUR!
Dance, my puppets! Dance! *Insert creepy-beyond-believe laughter here*