Ég fór niður á Glerártorg á Akureyri áðan með kærustunni að hitta vini hennar frá Húsavík. Þar hitti ég stelpu sem á heima á húsavík og hún sagði að við værum að hittast í fyrsta skipti en hefðum átt að sofa saman. Ég skildi þetta ekki alveg en hún útskýrði fyrir mér að einhver hefði sagt að við hefðum sofið saman. Ég hef aldrei hitt þessa stelpu áður. Afhverju er verið að segja svona? Ég á engann “óvin” svo að ég viti af sem ætti að vera að segja eitthvað svona. Leiðist sumum svona svakalega eða eru þau bara svona sorgleg?
Ég myndi giska á það síðarnefnda.