Í kvöld fór ég út að hjóla í vonda veðrinu. Ég var með ferðageislaspilara í vasanum. Meðan ég var að hjóla á miklum hraða heyrði ég allt í einu skell fyrir aftan mig og vissi ég auðvitað hvað þetta var og ég snarbremsaði. Þegar ég leit aftur fyrir mig lá spilarinn sem hafði dottið í poll, og það vildi svo til að það voru ekki margir pollar þarna. Geisladiskurinn og bæði batteríin duttu úr spilaranum líka og allt lenti þetta í þessum polli. Alveg ótrúlegt.
Síðan á leiðinni heim þá byrjaði hnakkurinn á hjólinu að verða óstöðugur og ruggaði upp og niður.


Alveg óþolandi :þ