Hafið þið prófað að horfa á auglýsingar á dönsku, þær eru þvílíkt barnalegar og fyndnar :}

Á cartoon network er dönsk útsending eða e-ð þannig, allaveganna eru auglýsingarnar á dönsku, kíkjið á þær.

Til dæmis er ein svona “boyband” auglýsing, einhverjir danskir 15-16 ára strákar eða e-ð, að auglýsa einhvern þvílíkt sorglegan disk, ég fer að hlæja þegar ég sé þá.
Svo er einhver sjampó auglýsing, þar sem einhver strákur er að syngja í sturtu, það er svo hallærislegt og fyndið.

Svo eru margar fleiri auglýsingar, Danir eru svo hallærislegir þegar kemur að barnaauglýsingum, það er bara sorglegt :}

Kíkjið á þetta, þ.e.a.s. ef þið eruð með cartoon network :}

Eini gallin reyndar við þessar auglýsingar er talið, en það gerir þetta bara enn fyndnara :}