Góðu hugarar (þó að ekki eru allir góðir),

Ég LalliG er kominn aftur í tvöfaldri merkingu.
Eins og margir vita þá var ég bannaður í viku fyrir ég er ekki alveg viss og þið sem bönnuðuð mig hafið ykkar ástæður sem eru ekkert sérstakar. En núna er ég kominn aftur og þið munuð heyra frá mér. Á meðan ég var bannaður skoðaði ég ýmsa korka sem var verið að fjalla um mál mitt eins og korkurinn sem danobus gerði“Ég legg til að LalliG verði bannaður!!” og ég vill þakka mönnum eins og Copperfield, LemoN og mörgum öðrum sem studdu mig í þessu máli mínu. En hins vegar danobus og þið fleiri ég vill bara segja að þið eruð ekki vinir mínir. Ég stend ennþá fast á skðounum mínum sem þið flest vitið hverjar eru og ég vill líka segja að ég hata alls ekki svertingja á neinn hátt ( misskilningur með það mál).

En eins og ég sagði þá er ég kominn aftur í TVÖFALDRI merkingu því að ég var að koma heim kl 5 í morgun frá Rimini á Ítalíu og ég skemmti mér ágætlega þar. Hræðilega lítið hótel sem ég var á og ég hata ströndina eftir þessa ferð (sandur útum ALLT). ekkert spes veður þarna, rigning fyrsta daginn svo skýjað með köflum. Og eitt sem ég skil ekki að það eru nánast ALLTAF seinkanir á hverju einasta flugi. En ágætis ferð og gott að fara frá þessu landi en samt er alltaf gaman að koma heim í kuldann á Leifstöð.

Það sem ég vill segja með þessu er að ég er kominn til að vera og þið getið ekkert þagað niðri í mér, ég stend á mínum skoðunum. Þakka aftur stuðning sem ég fékk í mínu banni, Copperfield og þið allir hinir.

En þá læt ég þetta bara nægja og hafið það gott