ég þarf að kvarta yfir þessu hérna nokkru dóti. ég hef sent vefstjóra og staðgengli hans nokkur bréf og mér hefur aldrei verið svarað né nokkuð gert!

vandamál mitt er held ég nokkuð algengt hérna á huga og það hefur verið hérna nokkuð lengi. eitt vandamálanna er það að kasmír heimasíðan mín virkar ekki ,s.s. ég kemst hvorki inn á hana né kemur hún upp þegar ég fer inn á hana án þess að fara í admin. venjulega þegar fólk er ekki búið að gera neitt á heimasíðunni sinni stendur samt svona “fyrirsögn” og “meginmál” á henni en það er ekki á heimasíðunni minni. það kemur bara hvít síða en ekki error eða eitthvað svoleiðis.

einnig er annað vandamál á egóinu mínu (á huga) að ég get ekki vistað stillingar á stillingarkubbnum eins og með að hafa alltaf flatan ham á korkum eða að láta undirskrift mína inn.

það væri mjög gaman ef það væri eitthvað gert í þessu svo að allir notendur huga geta notað hann til fullnustu og svo allir séu ánægðir.
——————————