He´s back! And this time he´s taking out the trash!

Jæja, eftir að hafað verið í banni í mánuð fyrir skemmtilegan kork sem tileinkaður var kvenmönnum fyrir gæludýr (sem var svo fljótur að eyðast að ég býst við því að enginn hafi lesið hann fyrir utan stjórnandann sem eyddi því), og síðan fyrir tvö vikubönn þar á undan í sumar, þá er ég loksins kominn aftur til þess að kenna hugurum hvernig það eigi að hugsa rétt og leiða ykkur inn í allan sannleikan.

Annars er lítið að frétta af mér fyrir utan það að ég er kominn með nýja fyrirmynd í lífi mínu sem er Jesú Kristur og auðvitað faðirinn, en þar áður þegar ég lifði mínum gamla manni þá var mín uppáhaldsfyrirmynd Patrick Bateman úr American Psycho, og þess vegna er byrjuð ný hugarfarsbreyting hjá mér.

Þannig að til þess að byrja með þá vil ég biðjast afsökunar á öllum þeim hugurum sem ég særði með grein minni ,,krossferð gegn samkynhneigð´´. Þetta var einfaldlega allt saman í gríni, og ef fólk var svo innantómt í sér og húmorslaust að það náði ekki að fatta þetta, þá er það bara ykkar vandamál.

Það munu koma greinar frá mér í framtíðinni sem geta verið alvarlega sem bara í húmor gerðar, og því vil ég biðja ykkur að loka ekki hjarta ykkar í garð mín, heldur sættið ykkur bara við það að ég er langflottasta og besta manneskjan í heiminum, sem gefur ykkur eitthvað til þess að lifa fyrir í annars hörðum heimi.

Kveðja.