Hvað er flottasti texti sem að þið hafið heyrt? Minn er textinn úr laginu ‘Afkvæmi hugsana minna’ með Bubba Morthens. Einstaklega flottur og flókinn texti :).


Afkvæmi hugsana minna hlusta ekki lengur á mig,
halda fyrir mér vöku og vilja láta annast sig.
Í höfði mínu liggja göng inn í gula salinn víða,
gönguferð á múrum hugans er svo lengi að líða,
svo ég ligg bara hér svefnvana og syng í hljóði lag
og syndi gegnum næturmyrkrið inn í nýjan dag.

Skuggar daganna minna í myrkrinu tala um þig
og minnast á brotin loforð sem sviku fleiri en mig.
Í hjarta mínu liggja göng grafin út af leiða
fyrir göngumóðar hugsanir sem í nóttinni veiða
minningar sem synda um í sjónum dökka rauða
og svefnvana ég ráfa um húsið stóra auða.

Á akri vitundar minnar sáðmaðurinn sefur rótt
ég hef séð hann koma og fara nótt eftir nótt
og nætursvefninn farinn er með friðinn mjúka, hvíta
og ég finn í brjósti vökuna hjartað sundur slíta
svo ég ligg bara hérna svefnvana og syng í hljóði lag
og syndi gegnum næturmyrkrið inn í nýjan dag.