Ég keypti mér þennan leik í gær og spilaði hann og það var allt í fína með það en svo fór ég aftur í hann um kvöldið og þá fór það að gerast að stundum datt alltíeinu hljóðið út, s.s. ég heyrði ekkert í bílum eða fólki eða fótataki eða neinu, samt í útvarpinu og eitthvað svoleiðis. Stundum kom það aftur inn en stundum ekki, þetta er frekar pirrandi og svo komu líka smá skruðningar í hátalarana, bara smá reyndar (sem hefur ekki gerst áður). Veit einhver hvað málið gæti verið með þetta? Það ætti ekki að vera talvan, enda glæný og mjög öflug talva.
…djók