Hafið þið lesið Ljósvakann í Morgunblaðinu í dag? Ég verð að segja að mér finnst þetta ekki vera mikil blaðamennska. Eitthvað væl um það að fréttamenn Fréttablaðsins hafi svindlað í Singstar og afsakanir á borð við að mamma hennar hafi verið laglaus og að hún væri nú samt miklu fallegri en þau. Hvað er í gangi?

Þetta er alveg minn húmor, myndi hlæja af þessu ef þetta væri skólablað eða eitthvað slíkt, en mér finnst þetta fulllagnt gengið af atvinnu blaðamönnum, sérstaklega hjá blaði sem er ekki ókeypis.