Djöfull er ég pirraður núna. Ég keypti leikinn í gær og var að setja hann upp núna. Svo ætla ég að gera Create Account og vel það. Þá virkar síðan ekki það kemur bara connection timeout. Svo fer ég á worldofwarcraft.com og geri create account þar og ég accepta aggreements og terms og ég set cd keyið í dálkinn þar sem það á að vera.

Og geri líka security stafina og ýti svo á next og þá kemur að cd keyið virkar ekki. Svo reyni ég aftur og aftur með stórum og litlum stöfum.

Svo prófa ég guest pass keyið og geri alveg eins og set cd keyið þar sem það á að vera og geri security stafina og þá kemur að cd keyið virkar ekki.

Hvað er að????! Var ég að kaupa gallaðan leik eða?
Veit einhver hvað er að?