Ég þoli ekki Vanish-auglýsinguna. Hér eru nokkrar ástæður fyrir því:

1. Kellingin í auglýsingunni er viðbjóðslega ljót og andlitsstrekkt.
2. Þegar hún skvettir rauðvíninu á kallinn blotnar bolurinn (sem hann er í undir skyrtunni) ekki.
3. Þessi auglýsing lýgur því það tekur miklu lengri tíma að ná rauðvíni úr fötum. Mamma mín reyndi að ná rauðvíni úr bol frænku minnar og bolurinn þurfti að liggja í Vanish-bleyti í 5 daga. Og það var ennþá smá rák eftir vínið á bolnum.
4. Ef spaghettísósan hefði fengið að þorna ofan í efnið þá hefði ekki verið svona auðvelt að ná blettinum úr andskotans skyrtunni.
5. Kellingin sparkar í hurðina á þvottavélinni til að loka henni.