Ahh! Bróðir minn og kona hans eru búin að vera hérna með stelpurnar sínar 2 hérna heima í hálfan mánuð. Og ég er að verða geðveik! Sú yngsta vaknar alltaf á slaginu 6 á morgnana og grenjar eins og stungin grís! Alveg sama hvað sé gert fyrir hana, hún hættir ekki! Og svo um 8 hættir hún þegar allir eru orðnir þreyttir og uppgefnir. Þá er hún svo kát og til í að fara fram í morgunmat. En sú eldri heldur bara fyrir eyrun og sofnar aftur (greinilega vön þessu). Grey heimilsfólkið sem þarf að mæta í vinnu 8 og fær ekki að sofa síðustu tímana!

Ég er illa sofin eftir þetta því að hún byrjaði með skiptum klukkan 3 í nótt. Og herbergið mitt er við hliðiná þeirra herbergi. :(

Ég var bara að fá mína útrás. Vil ekki heyra nein skítköst og aulabrandara! Ég vildi deila þessu með ykkur. Eins og að þið séu að röfla hvað hestamenn séu svo miklar tussur!