Kæru Hugarar.

Ég hvet ykkur alla til þess að leggja ykkar að mörkum til að glæða Vísindi og fræði lífi á ný. Eigið þið gamlar ritgerðir úr skólanum? Sendið þær inn. Eigið þið ykkur uppáhaldsvísindamann eða uppáhaldsrannsókn? Skrifið um það. Vitið þið um skemmtilegar myndir sem tengjast vísindum og fræðum? Sendið þær inn. Hafið þið rekist á sniðugar síður um vísindi og fræði á netinu? Sendið þá inn tengla.

Vísindi og fræði er ekki bara fyrir þessi harðkjarnavísindi eins og efnafræði, eðlisfræði og líffræði. Þið getið skrifað um svo miklu meira, t.d. málvísindi, stærðfræði, sálfræði, mannfræði, lögfræði, hagfræði eða læknisfræði.

Calliope