Djöfull klúðruðu þessir gaurar á reykjavík rocks miðasölunni!!! Með þessu bara hægt að fara í a svæði ef þú kaupir a á duran duran líka! Það voru alltof fáir á þessum tónleikum. Þeir voru svo desperate að fá fólk til þess að koma í lokin að ég heyrði að það hefði verið að gefa miða í ýmsum fyrirtækjum og eitthvað svoleiðis…. gæti verið kjaftæði. En ég veit að miklu fleiri hefðu komið ef að þeir höfu haft þetta aðeins ódýrara og ekki verið með þetta Duran Duran crap. Ég vorkenndi hljómsveitunum að þurfa að spila fyrir svona tómum sal.

Annars voru þessir tónleikar snilld!