þessi bévítans tilboð þarna í BT!! AAAAAA!! mig langar til að öskra!! ég og pabbi fórum þarna klukkan 7 í morgun og ég ætlaði að fá mér vefmyndavél og hann ætlaði bara að skutla mér. Ég kom á slaginu í kringluna en neinei.. þá varð þetta eitthvað fokk þar og þau fengu ekki pöntunina með vefmyndavélum, að þær væru eiginlega bara niðrí Skeifu!! þannig að við strunsuðum út og keyrðum niðrí Skeifu en þegar við komum, 07:10, þá voru þær “búnar”!!

ÉG ÞOLI EKKI BT!!