Þetta er allavega betra en það átti að vera upprunalega, allavega strætóinn sem fer í Mosó. Mér líst bara mjög vel á hann, fer á 20 mín. fresti og svo hálftíma fresti eftir kl. 18 :P (Núna fer hann á klukkutíma fresti á kvöldin og helgar). Reyndar á hann bara að ganga til 23 á kvöldin… :/ En svo þarf maður bara að taka einn strætó alveg niður í Vesturbæ! Ekki amalegt það :) Verst að hann fer ekki niður á Lækjatorg, þarf þá að labba eða taka annan strætó frá Hlemmi og niður að MR.